Útskriftin gekk mjög vel. Börnin byrjuðu á að sýna okkur leikrit sem þau bjuggu til sjálf um Ronju Ræningjadóttur. Eftir það voru þeim afhentar rósir og kveðjubækur með verkefnum eftir þau og myndum af þeim. Í lokin voru borðaðar vöfflur með rjóma og sultu. Viljum við þakka foreldrum og öðrum sem komu kærlega fyrir komuna.