Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Leikskólinn Andabær
   Arnarflöt 1
   311 Borgarnes

Símanúmer:
   Aðalnúmer:      437 0120
   Leikskólastjóri: 433 7170
   Goðheimar:      433 7172
   Álfheimar:        433 7173
   Hulduheimar:    433 7174
Netfang:     andabaer@borgarbyggd.is
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Andabær er leikskóli á  heilsubraut.

 

Heilsuefling í skólum byrjaði 1994 sem samstarfsverkefni Heilbrigðisráðuneytisins og Landlæknisembættisins við skóla á öllum skólastigum.   Evrópuverkefni heilsuleikskóla hófst 1999 og lauk 2002 og voru 4 skólar og Heilsugæslan í Kópavogi þátttakendur.  Afrakstur Evrópuverkefnisins var viðmið fyrir leik-grunn- og framhaldsskóla þar sem fram komu markmið heilsueflingar í skólum og þau grunnvallarviðmið sem heilsuskólar eiga að starfa út frá. 

Unnur Stefánsdóttir leikskólastjóri í Heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi hafði frumkvæði að mótun heilsustefnu fyrir leikskóla.  Markmið stefnunnar er að auka gleði og vellíðan barnanna með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun í leik og starfi.  Kennarar Urðuhóls gáfu út Heilsubók barnsins og hönnuðu merki heilsuleikskólans.

 

Nú erum við í Andabæ orðin leikskóli á heilsubraut.  Leikskólar eru á heilsubraut í 3 ár áður en þeir geta orðið Heilsuleikskólar.  Ferlið fer strax í gang og stefnum við á að verða orðin Heilsuleikskóli í mars 2013.

 

Markmið heilsustefnunnar er fyrst og fremst að stuðla að heilsueflingu í leikskólasamfélaginu.  Í dag eru 11 heilsuleikskólar víðsvegar um landið sem hver um sig hefur sín einkenni og áherslur auk þeirra þriggja þátta sem einkennir heilsustefnuna.  Þessir þættir eru hreyfing, listsköpun og næring.

Í heilsustefnunni er unnið markvisst með hreyfingu og listsköpun á þann hátt að öll börn fá skipulagðar stundir með sérhæfðum kennurum 1-2 sinnum í viku.  Þessar stundir eru skipulagðar fyrirfram og tengjast bæði þeim þáttum sem prófaðir eru í Heilsubók barnsins og áherslu leikskóla.  Í næringu er lögð áhersla á hollt heimilisfæði þar sem markmiðið er að auka grænmetis og ávaxtaneyslu og að nota fitu, salt og sykrur í hófi.  Við samsetningu matseðla er tekið mið af markmiðum Lýðheilsustöðvar varðandi næringu barna.

Við upphaf leikskólagöngu sinnar fær hvert barn Heilsubók barnsins og er hún grunnur heilsustefnunnar því hún hjálpar okkur að ná settum markmiðum.  Hún er fjórtán blaðsíður sem hafa að geyma útfærð skráningablöð varðandi ýmsar upplýsingar um barnið.  Skráð er heilsufar, hæð og þyngd, félagsleg færni í listsköpun (Þróun teikninga o.s.frv.)  Skráning fer fram tvisvar sinnum á ári, haust og vor og er foreldrum boðið í viðtal í kjölfarið.  Skráningin gerir okkur kleift að fylgjast emð þroskaframvindu barnsins og er einnig tæki til að upplýsa foreldra um stöðu þess í leikskólanum.

 

Markmið heilsustefnunnar er að venja börn strax í barnæsku við heilbrigða lífshætti með það í huga að þeir vera hluti af lífsstíl þeirra til framtíðar.  Áherslu þættir heilsuleikskóla geta verið mismunandi eftir leikskólum en góð næring, góð heyring og listsköpun skal ávallt vera aðalsmerki þeirra.

 

Meiri upplýsingar er hægt að fá á vef heilsuleikskólanna: heilsustefnan.skolar.is

útskriftarferð í Vatnaskóg 11 maí 2012