Minnsta letur Miðstærð leturs Stærsta letur Stærsta letur á dökkum grunni Prenta þessa síðu
Aðrir vefir Borgarbyggðar
Leikskólinn Andabær
   Arnarflöt 1
   311 Borgarnes

Símanúmer:
   Aðalnúmer:      437 0120
   Leikskólastjóri: 433 7170
   Goðheimar:      433 7172
   Álfheimar:        433 7173
   Hulduheimar:    433 7174
Netfang:     andabaer@borgarbyggd.is
Atburðadagatal
29
30
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
1
2
3
4
5
6
7
8
9
Fyrri mánuður
maí 2012
Næsti mánuður

Grænfánafundur 25. júní 2010

 

Mættar voru:  Berglind, Gro, Valdís, Hafdís, Helga Björk og Anna Baldrún (fulltrúi foreldra).

 

Við fórum yfir umhverfisgátlistann sem gefinn er út af Landvernd.

 

Það er margt sem við erum að gera gott í Grænfánamálum en svo er einnig eitthvað sem mætti betur fara.  Okkur finnst við samt vera á góðri leið með þetta allt saman.  Það er margt sem við erum að nýta sjálf sem t.d. leikföng fyrir börnin eða í föndurvinnu.  Við ræddum aðallega matarinnkaupin og þá sérstaklega að versla í heimabyggð eins og t.d. grænmeti.  Helga Björk ætlaði svo að gera þennan gátlista með börnunum á Goðheimum.

 

Fundi slitið.

 

 

 

Grænfánafundur 16. apríl 2010

 

Mættar voru:  Berglind, Valdís, Hafdís, Gro, Helga og Anna Baldrún (fulltrúi foreldra).

 

Við byrjuðum á því að ræða um það hvort að við vildum hafa barn/börn af Goðheimum í grænfánanefndinni.  Ákveðið var að bíða aðeins með það fram á haustið en hægt er að leyfa hópnum á Goðheimum að vera með í gátlistanum sem við munum fara yfir á næsta grænfánafundi.

 

Við spjölluðum aðeins um hvernig gengi með taupokana og okkur fannst þeir byrja mjög vel.  Vonum bara að þeir skili sér í hús eftir notkun.

 

Í sambandi við mjólkurbeljurnar er ennþá verið að hugsa um staðsetningu á þeim.

 

Berglind sýndi hugmynd um hana Urði umhverfisvænu sem leikskólinn Naustatjörn á Akureyri er að nota.  Þetta er teiknimyndapersóna sem hjálpar manni við ýmislegt sem að viðkemur Grænfánanum.  Naustatjörn hefur útbúið spjöld til að sýna lífrænan úrgang, stoðefni, innkaup, 1 bréfþurrka, tau og tuskur, 1 skammtur af handsápu og uppþvottalögur.  Á þessum spjöldum eru myndir og textar.  Við hér á Andabæ gætum notfært okkur spjöldin um bréfþurrkurnar og handsápuna.  En best er að útfæra það öðruvísi t.d. með myndum af börnunum á deildunum og smá texti.  Goðheimar eru búnir að búa til spjald til að hafa á salerninu sem að fjallar um hvernig á að haga sér á salerninu.  Skoðum það aðeins betur og athugum hvort hægt sé að nota það á Álfheimum líka.

 

Berglind kom með hugmynd um að gera könnun á starfsfólki og foreldrum um hversu umhverfisvæn við erum.  Hún sýndi okkur könnun sem að fannst á netinu og ætlum við að nota hana og senda foreldrum á netinu.  Einnig mun starfsfólk gera þessa könnun. 

 

Í sambandi við matjurtagarð þá erum við búin að finna staðsetningu fyrir hann og ætlum við að byrja á honum sem fyrst.  Spurning um að spyrja foreldrafélagið um aðstoð við gerð matjurtagarðsins.  Við eigum svo eftir að ákveða hvað við ætlum að hafa í matjurtagarðinum okkar. 

 

Berglind á eftir að funda með Árdísi sem að er verkefnastjóri Grunnskólans um hvernig samstarfið á að vera á milli grunnskóla og leikskóla.

 

Næsti fundur fer í að yfirfara gátlistann okkar.

 

Fundi slitið.

 

 

 

Grænfánafundur 10. febrúar 2009

 

Mættar voru: Valdís, Áslaug, Þórunn, Ásta og Sigga Lóa. Ásta á Hulduheimum er komin í umhverfisnefndina í stað Önnu Siggu.

 

Miklar vangaveltur voru um markmið næstu tvegga ára og loks komst niðurstaða um tillögur að þeim. Munu þær verða lagðar undir verkefnisstjóra Landverndar.

 

Við ræddum um skipulag Grænfánaveggjar í nýjum leikskóla og hvaða vegg þar skyldi notaður. Deildir skipta með sér verkum í að útbúa spjöld fyrir myndir og gera skreytingar á vegginn. Þar verða t.d. renningar með fótsporum allra barnanna og vinatré úr höndum allra barnanna í Andabæ.

 

Helena Guttormsdóttir hefur gefið grænt ljós á það að við hengjum upp listaverk eftir börnin í Andabæ í matsal Landbúnaðarháskólans, Ásgarði. Munum við skipta næstu mánuðum niður á deildirnar þannig að hver deild fái tækifæri til að sýna afrakstur leikskólastarfsins.

 

Skoða á enn nánar vinnu við fréttabréf í samvinnu við grunnskóla Borgarfjarðar á Hvanneyri þar sem kynnt er umhverfisstarf beggja skólanna.

 

Fundi slitið.

 

 

 

Grænfánafundur 22. okt. 2008

 

Mættar voru: Valdís, Anna Sigga, Áslaug, Sigríður (fulltrúi foreldra), Ágústa (nemi) og Þórunn.

 

Við fórum aðeins yfir stöðuna – hvernig erum við að standa okkur?

Ef gátlistinn frá Landvernd er skoðaður þá sjáum við að mjög margt erum við að gera vel en sumt megum við bæta og gera enn betur. Eftirfarandi ætlum við að vinna betur að:

  • Kertagerð – við eigum töluvert af kertaafgöngum og megum gjarnan nýta þá betur. Komið hefur í ljós að betra er að útbúa kerti í krukkur eða önnur ílát heldur en að steypa þau í mót því þá geta börnin tekið meiri þátt í kertagerðinni.
  • Pappírsgerð – Enn vantar okkur nýjan sprota til að tæta pappírsmassann og vonumst við eftir að úr því verði bætt fljótlega.
  • Matarafgangar – Fara á hverjum vetri í heimsókn og skoða moltugerðarvélina svo börnin séu betur meðvituð hvað gert er við matarleifarnar.
  • Finna leiðir til að minna foreldra á að hér sé tekið við rafhlöðum, gleri, kertum og alls kyns ílátum undan matvælum og öðru. Það getur nýst í könnunarleik og skapandi starf. Þurfum kannski að vera duglegri að nýta það í skapandi starf sem okkur berst svo það safnist ekki bara fyrir í geymslum.
  • Mikilvægt er að ALLIR sem tengjast leikskólanum; foreldrar, börn og starfsfólk viti um Grænfánastarfið sem hér fer fram og hvað það þýðir. Pössum upp á það.
  • Vera duglegar að fræða börnin um það af hverju við séum með Grænfánann         – hvað þýðir það að vera Grænfánaleikskóli. Nýta t.d. hópastarfið til þess.

 

Athuga þarf hvort gámar séu á Hvanneyri undir mjólkurfernur, gler og málma.

 

Í fyrra ætluðum við að standa fyrir hreinsunardegi hér á Hvanneyri en hættum við því nemendur LBHÍ urðu fyrri til. Við látum samt ekki deigan síga og hefur verið ákveðið að láta verða af þessu í vor. Hugmyndin er að við byrjum fyrst að hreinsa með börnunum í kringum leikskólann og svo geta foreldrar og fjölskyldur barnanna haldið áfram eftir leikskóla. Skoðum þetta nánar síðar.

 

Næsta vor ætlum við að sækja um Grænfánann í 3. sinn. Það þýðir að í vetur þurfum við að bæta við a.m.k. tveimur nýjum umhverfismarkmiðum. 

Ræddar voru ýmsar hugmyndir og  þetta bar á góma:

  • Spara orku/vatn.
  • Minnkun á pappírsþurrkum og bleiublautþurrkum (notum handklæði/þvottapoka)
  • Kaupa umhverfisvænar plastvörur eins og mögulegt er (forðast pvc-plast)
  • Minnka notkun á plastpokum í leikskólastarfinu með því að útbúa taupoka fyrir hvert barn sem í eru látin óhrein/blaut föt sem senda þarf heim með börnunum. Hægt væri að gera pokana persónulega og tengja við heimilin með því að fá foreldra til að koma með efni í pokana, t.d. gömul koddaver, viskustykki eða annað sem til fellur heima.

 

Þórunn þarf að ræða við verkefnisstjóra hjá Landvernd til að kanna hvort þessi markmið séu gild og hversu mörg við þurfum fyrir næstu umsókn.

 

Undanfarin ár hefur okkur staðið til boða að hengja upp listaverk barnanna í matsalnum í Ásgarði. Hafa þá deildirnar þrjár skipst á að sýna afrakstur hverrar deildar. Viljum við endilega halda þessu áfram og ætlum að athuga hvort við fáum það.

 

Áslaug sagði frá því að Árdís kennari í Andakílsskóla hefði fengið hugmynd um að gefa út fréttabréf sem borið yrði í hús á Hvanneyri og þar yrði kynnt starfsemi leik- og grunnskólans. Skoða á þetta betur.

 

Fundi slitið.  

 

 

Grænfánafundur  1. október 2007

Mættar voru: Þórunn, Valdís, Gro, Áslaug og Ásta (í stað Kötu).

 

Komin er í hús Ársskýrsla Landverndar og eru allir hvattir til að skoða hana (í möppu). Með ársskýrslunni fylgdi hvatningarbréf frá Landvernd til allra Grænfánaskólanna.

 

Við þurfum að fara að vinna að markmiðum okkar og nú er efst á baugi að koma “veggnum okkar” á laggirnar. Hver deild þarf að finna vegg á deildinni sem hentugur er fyrir fréttir af Grænfánastarfi.

·                     Kom upp tillaga um það að skanna skírteinin sem við fengum frá Landvernd um það að Andabær er Grænfánaleikskóli, þannig að hver deild geti hengt upp skírteini á vegginn sinn. Þórunn ætlar að senda fyrirspurn til Rannveigar hjá Landvernd um það hvort þetta sé í lagi.

·                     Við ætlum einnig að biðja Sollu um að útbúa plagg með merki Grænfánans fyrir allar deildir til að hengja á vegginn.

·                      Á vegginn er hugmyndin að hengja t.d. upplýsingar af umhverfisstarfi barnanna í leikskólanum; myndir og texti og skreyta með t.d. greinum, laufum og slíkum efnivið úr náttúrunni.

 

Við ætlum að finna okkur stað úti í nánasta umhverfi okkar til að hirða um, tína rusl og fylgjast með árstíðabreytingum þar. Ákveðið var að nota hópastarfshópana í þetta, þannig að hver hópur finni sér sinn stað.

 

Við þurfum að vera duglegri að vera duglegri að kynna Grænfánaverkefnið fyrir nánasta samfélagi okkar og vekja athygli íbúanna hér á umhverfisvernd. Lagt var til eftirfarandi:

 

·                      Ræddum um það að halda áfram að nýta okkur vegginn sem Hella bauð okkur afnot af úti í Ásgarði. Þar fékk Andabær að kynna listaverk barnanna. Við ætlum okkur að skipta þessu markvissara milli deilda þannig að hver deild fái vegginn í 2 mánuði í senn. Þar væri t.d. ekki einungis hægt að hengja upp listaverk barnanna heldur líka setja upp ljósmyndir úr starfinu með börnunum. Valdís tók að sér að spyrja Hellu hvort veggurinn standi okkur enn til boða.

·                      Komast að því hvenær dagur umhverfisins er og skipuleggja vel fyrir þann dag verkefni í þágu umhverfisverndar t.d. að fá staðarbúa í ruslatínslu, að spara bílinn þennan dag eða eitthvað slíkt.

·                      Senda frétt í Skessuhorn og myndir frá kartöfluuppskeru Andabæjar. Þórunn sér um það.

 

Nýr fulltrúi foreldra í Grænfánanefndinni er Sigríður Jóhannesdóttir, móðir Berghildar Aspar.

 

Við ræddum það að mikilvægt er að allir starfsmenn fari vel með pappír í leikskólanum og að við nýtum hann eins vel og mögulegt er. Við þurfum samt sem áður að finna lausn á því hvað við gerum við afskorninga af t.d. vélritunarpappír sem flæðir hér um allt. Allar hugmyndir verða vel þegnar og starfsfólk deildanna falið að leggja höfuð í bleyti.

 

 

 

Grænfánanefndarfundur, nóv. 2006

 

Mættar voru: Þórunn, Katrín, Valdís, Áslaug og Gro. 

 

·                 Fórum í gegnum gátlista sem gefinn er út af Landvernd, skildum hluta eftir sem Áslaug ætlar að fara yfir með börnunum. Gerðum okkur ljóst að þóp að Grænfáninn sé fenginn þá er ýmislegt sem er ábótavant og gott er að hafa þennan gátlista til að fara yfir reglulega.

 

·                 Við ræddum um mikilvægi þess að kaupa inn í stórum pakkningum og reyna af fremsta megni að versla í heimabyggð.

 

·                 Við komumst að því að ýmislegt sem við erum að gera er umhverfisvænt t.d. notum við smekki og þvottapoka við matarborðið sem þvegið er og notað aftur og aftur. Allar tuskur og handklæði eru einnig fjölnota og við gerðum okkur ljóst að í leikskólanum er ekki notaður pappír til að þurrka upp bleytu.

 

Fundi slitið.

 

 

 

Umhverfisnefndarfundur 03.02.05

 

 

·    Mættir voru: Sólrún Halla, Anna Sigríður, Valdís, Helgi Björn og Gro.

·    Fórum yfir skrefin sjö og þar sáum við að helst vantaði upp á sjöunda skrefið en það er umhverfisstefna leikskólans.  Þannig að við punktuðum niður það sem við vildum hafa í þeirri stefnu.

-        markmiðin eru okkar starfsreglur.

-        Umhverfisnefndin setti sér markmið og leiðir til að þróa starfið.

-        Krakkarnir taka virkan þátt í samverustundum.

-        Höfum hug á setja niður matjurtir, jafnvel reyna að fá útsæði hjá foreldrum.

-        Sá fræjum t.d. tómötum, kryddjurtum og gúrkum.

-        Hópastarfið nýtum við einnig í náttúruskoðun og reynum að nýta það sem náttúran vill losna við í ýmiskonar verkefni.

-        Tínum rusl þegar við sjáum og getum.

-        Ætlum að setja upp skilti um að fólk eigi að drepa á bílunum.  Valdís ætlar að athuga með kaup á svoleiðis skilti, annars munum við útbúa það.

-        Getum ekki alltaf verið að slökkva og kveikja ljósin í leikskólanum vegna þess að í þeim eru svokallaðar sparperur og mesti kostnaðurinn við rekstur þeirra er þegar kveikt er á þeim.

-        Við viljum sýna krökkunum ferlið frá matartíma að Moldu.  Börnin taka virkan þátt í því að ganga frá og fara með lífrænan úrgang í Moldu.

-        Það sama viljum við gera með kertin.  Fá kertastubba héðan og þaðan og endurnýta þá til að gera ný kerti.

-        Á leikskólanum er að mestu verið að nota örtrefjaklúta við þrif á leikskólanum.

 

·    Valdís sagði okkur það að hún væri að athuga með nýtt uppþvottavélarefni sem er ekki hættulegt börnum.

·    Einnig ætlar hún að athuga með kostnað á lífrænu efni til þess að þvo gólf með.

·    Við töluðum einnig um það hvernig þemaverkefnið okkar samtvinnast við umhverfisstefnu leikskólans.  Hreyfingin – náttúruskoðun – vettvangsferðir o.fl.

Fundi slitið.

 

 

 

Umhverfisnefndarfundur 24. nóv. 2004

 

·    Þeir sem voru mættir: Sólrún Halla, Anna Sigríður, Valdís og Gro.

·    Helgi Björn þáði boð okkar um að vera í nefndinni þannig að nú var hann einnig mættur á fund.

·    Við ákváðum hvaða fimm markmið við vildum setja okkur:

-        Safna kertaafgöngum og nýta þá.

-        Safna lífrænum úrgangi og fara með hann í Moltu.

-        Nýta matarílát í föndur, leik og fleira.

-        Safna rafhlöðum og fara með þau á bensínstöðina.

-        Endurnýta og endurvinna allan fínan pappír., m.a. til pappírsgerðar.

 

·    Samið var kynningarblað sem sent var til foreldra barna í Andabæ um Grænfána-verkefnið.  Þetta endaði í fréttabréfi leikskólans sem sett var í hólf barnanna.

Fundi slitið.

 

 

Umhverfisnefndarfundur 19. nóv. 2004

 

·    Þeir sem voru mættir: Sólrún Halla verkefnastjóri, Anna Sigríður fyrir Álfheima, Valdís leikskólastjóri og Gro matráður.

·    Ákváðum að tala við Helga Björn(faðir Einars Ágústs), um hvort að hann vildi sitja með okkur í umhverfisnefnd fyrir hönd foreldra.  Við tókum einnig þá ákvörðun að hafa ekki barn með okkur í nefndinni heldur að nýta frekar samverustundir til að fá tillögur og hugmyndir hjá börnunum.

·    Fórum í gegnum gátlista sem gefinn er út af Landvernd, skildum hluta eftir sem Sólrún Halla ætlar að fara yfir með börnunum.  Margt sem er ábótavant, en ætlum að gera betur fyrir vorið.

·    Það var ákveðið að búa til skilti sem væri hengt utan á húsið, þar sem foreldrar eru beðnir um að drepa á bílunum.  Sólrún ætlar að taka það að sér að búa það til og Valdís ætlar að panta plötu til að mála á.

·    Búa til miða sem segir börnum og fullorðnum að spara vatnið með því að skrúfa fyrir þegar það er ekki verið að nota vatnið.

·    Hafa föturnar undir lífrænan mat meira sýnilegan.  Nýta borðstjórana betur og láta þá fara með matarvagninn fram og setja afganginn af matnum í ákveðinn dall hjá Gro í eldhúsinu.  Seinna munum við fylgja lífræna úrganginum eftir og elta hann út að ruslafötu og síðan alla leið í Moltu við rannsóknarhúsið.

·    Sú ákvörðun var einnig tekin að hafa tuskur á matarvögnunum til að börnin gætu sjálf þurrkað upp eftir sig ef þau sulla yfir matarborðið.  Ekki nota pappír.

Fundi slitið.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

útskriftarferð í Vatnaskóg 11 maí 2012