Mánudaginn 6. febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 6. febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Samband Íslenskra sveitafélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Í tilefni dagsins ætlum við í Andabæ að hafa opið hús milli kl. 8:00 og 16:00 þennan dag. Hvetjum við þá sem vilja að kíkja í heimsókn til okkar, verðum með heitt á könnunni:)